Byrjaðu á því að skrá þig inn á WordPress. Þegar þangað er komið er mjög einfalt að setja inn færslu.

Undir ‘Færslur’ eru fjórir dálkar, byrjum á því að tala um ‘Allar færslur’. Þar inni getur þú sýslað með allar færslur innan þíns vefs. Þar getur þú eytt og breytt gömlum færslum eins og þú vilt.

Næst er það ‘Bæta við nýrri færslu’ þar getur þú skrifað nýja færslu. Það getur verið eins og frétt eða blogg.

Svo eru það flokkar, þar getur þú búið til flokka til þess að skipuleggja þínar færslur. Sem dæmi er hægt að gera flokk sem heitir Fréttir og annan sem heitir Tilkynningar. Það veltur allt á því hvernig þú vilt skipuleggja þínar færslur.
Byrjum á því að búa til nýjan flokk, þú ætlar búa til flokkinn ‘Fréttir’.

Svo ýtir þú bara á ‘Bæta við nýjum flokki’ og ferð svo í að bæta við nýrri færslu. (Færslur -> Bæta við nýrri færslu)
Núna færðu upp glugga þar sem þú get skrifað færslu.

Þú byrjar á því að skrifa titil á fréttinni uppi í titla boxinu.

Því næst skrifar þú fréttina og setur inn viðeigandi myndir í efnisboxið fyrir neðan.

Svo velur þú flokkinn sem þú bjóst til áðan undir ‘Flokkar’.

Svo mælum við með að ef þú vilt að það sé mynd með færslunni, að setja hana undir Featured image. Það er neðan við þar sem þú velur flokkana.

Þá getur þú valið um hvort þú viljir upphlaða mynd eða nota mynd sem er nú þegar til í safni.

Svo ýtir þú á ‘Publish’ og þá er fréttin komin í loftið á vefsíðunni, undir réttum flokki.