Breyta valmynd

Flestir vefir gerðir af Herrabyte sem eru í WordPress nota þessa týpu af valmynd (hér að neðan). Sumir vefir eru með sérstakar valmyndir sem getur verið aðeins erfiðara er að vinna með. Ef svo er hafðu samband við okkur og við gerum kennsluefni fyrir þig.

Valmyndin er yfirleitt það fyrsta sem viðskiptavinur þinn, sem heimsækir vefsíðuna, getur smellt á. Því er mikilvægt að setja þar aðeins helstu upplýsingar sem þú vilt að viðskiptavinurinn lesi fyrst.

Svona lítur aðalvalmyndin út á þessum vef. Til þess að breyta honum þarft þú einungis að skrá þig inn og ferð svo í ‘Útlit’ og þaðan í ‘Valmyndir’ eins og á myndinni hér að neðan.

Vinstra megin getur þú sett inn tengla. Segjum að þú viljir setja ‘Forsíða’ í þína aðalvalmynd. Þá hakar þú í ‘Forsíða’ og ýtir svo á ‘Bæta við valmynd’.

Núna getur þú dregið til hvar þú vilt að tenglar innan valmyndarinnar séu. Það sem er inndregið er í raun undirflokkur undir aðalvalflokki.

Svo þegar að þú ert búinn að láta alla tengla rétt inn ýtir þú á ‘Vista valmynd’. Núna er ‘Forsíða’ hlekkur kominn í aðalvalmynd.

Scroll to Top