Breyta notendum

WordPress-kerfið gerir þér auðveldlega kleyft að sýsla með notendur kerfisins.

Byrjaðu á því að innskrá þig og farðu svo niður í Notendur eða Users ef síðan er á ensku.

Breyta núverandi notanda

Þegar þangað er komið getur þú valið að bæta við nýjum notanda eða skoðað alla núverandi notendur og sýslað með þá. Byrjum á því að ýta á ‘Allir notendur’.

Hérna getur þú valið notendur sem þú vilt breyta. Þegar þú ýtir á notandann sem þú vilt breyta getur þú meðal annars breytt nafni og lykilorði notandans.

Búa til nýjan notanda

Ef þú ferð aftur í notanda stikuna í valmyndinni til vinstri. Þá getur þú valið ‘Bæta við notanda’. Nú getur þú sett upp nýjan notanda, valið lykilorð og hvernig notanda þú vilt búa til.

Við mælum með að hafa alltaf hakað í ‘Senda notendatilkynningar,’ þá fær notandinn sendan póst á netfangið sem þú skráðir með lykilorði og notendanafni. Hérna getur þú líka valið lykilorð fyrir notandann ef þess þarf.

Í hlutverk eru oftast sömu valmöguleikarnir, best er að velja þá út frá því hvað þú vilt að notandinn hafi aðgang að. Sem dæmi væri ekki sniðugt að hver sem er hefði aðgang að ‘Kerfisstjóra’ stillingum.

Kerfisstjóri: Hæsta aðgangsstigið. Kerfisstjórar hafa vald til þess að komast inn í nánast allt.
Ritstjóri: Hefur aðgang að öllum færslum, síðum, athugasemdum, flokkum og merkjum og getur hlaðið upp skrám.
Höfundur: Getur skrifað, hlaðið upp skrám, breytt og birt sínar eigin færslur.
Þátttakandi: Getur lesið og gert athugasemdir við færslur og síður, á lokuðum síðum.
Áskrifandi: Fólk sem gerist áskrifandi að uppfærslum á síðunni þinni.

Scroll to Top