ISNIC heldur utan um .is lén á Íslandi. Tæknilegur tengiliður ber ábyrgð á tæknilegum stillingum lénsins, svo sem DNS og póstþjónum. Hér eru skrefin til að skoða og breyta tæknilegum tengilið.
1. Innskráning á ISNIC
- Farðu á vefsíðu ISNIC: www.isnic.is.
- Veldu Innskráning efst í hægra horninu.
- Skráðu þig inn á notandann þinn.
2. Finna lénið þitt
- Byrjaðu að fara á „Mín síða„.

- Ýttu svo á skiptilykilinn til að komast inn á Stjórnborð hjá því léni sem þú vilt breyta.

3. Skoða tæknilegan tengilið
- Listi opnast fyrir neðan valið lén.
- Leitaðu að hlutanum Tæknilegur.
- Ýttu á blýantinn við hlið núverandi tæknilegan tengiliðs.

4. Breyta tæknilegum tengilið
- Skrifaðu inn nýja notandanafnið í tæknilegur tengiliður. Spurðu tæknilegan tengilið um sitt notendanafn.
- Takið eftir að ef notendanafnið inniheldur -IS í endan þarf ekki að bæta því sérstaklega við.
- Ýttu á Áfram.

